Stórleikur Helenu dugði ekki til

Helena Sverrisdóttir. stækka

Helena Sverrisdóttir. mbl.is/TCU

Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í TCU háskólaliðinu í körfubolta féllu úr leik í 64-liða úrslitum NCAA keppninnar í kvöld. TCU lék gegn Dayton og úrslitin réðust á lokasekúndunni þar sem að Brittany Wilson leikmaður Dayton skoraði úr sniðskoti og tryggði liðinu 67:66 sigur. Helena var atkvæðamest í liði TCU og skoraði hún 17 stig, tók 13 fráköst og gaf 6 stoðsendingar.

TCU var með 18 stiga forskot þegar 13 mínútur voru eftir af leiknum.  Helena hitti úr 9 af 10 vítaskotum sínum í leiknum. Þriggja stiga skotin gengu ekki upp hjá íslensku landsliðskonunni en ekkert af 6 skotum hennar fór rétta leið. Fjögur af alls sextán tveggja stiga skotum hennar fóru ofaní.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar


finnur.is