Boston lagði Dallas á útivelli
Sjö leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í gær. Paul
Pierce skoraði 29 stig fyrir Boston í 102:93 sigri á útivelli gegn Dallas. Þetta var fjórði sigur Boston í röð. Dirk
Nowitzki skoraði 28 stig fyrir Dallas sem hafði fyrir leikinn unnið 14 af
síðustu 15 leikjum sínum.
New Jersey tapaði 100:90 gegn Toronto á heimavelli. New Jersey hefur tapað 13
heimaleikjum í röð sem er félagsmet en liðið þarf að vinna 3 af síðustu 13
leikjum sínum til þess að forðast að bæta versta árangur í NBA frá upphafi.
Philadelphia vann aðeins 9 leiki og tapaði 72 tímabilið 1972-1973. New Jersey
hefur aðeins unnið 7 leiki í vetur.
Úrslit:
Philadelphia - Chicago 84:98
Miami - Charlotte 77:71
New Jersey - Toronto 90:100
Memphis - Golden State 123:197
Dallas - Boston 93:102
Denver - Milwaukee 97:102
Utah - New Orleans 106:86






