Gasol fór fyrir meistaraliði LA Lakers

Pau Gasol. stækka

Pau Gasol. Reuters

Sjö leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt og gær.  Cleveland lagði Detroit 104:79 og var þetta fjórði sigurleikur Cleveland gegn Detroit á tímabilinu. Þetta er í fyrsta sinn í þrjátíu ár þar sem að Detroit tapar öllum leikjum sínum gegn Cleveland á keppnistímabilinu.

LeBron James hafði hægt um sig í liði Cleveland og skoraði 15 stig og gaf 7 stoðsendingar. Pau Gasol  fór fyrir meistaraliði LA Lakers í 99:92 sigurleik gegn Washington. Spánverjinn skoraði 29 stig og tók 12 fráköst. Þetta var 11. tapleikur Washington í röð.

Úrslit:
New York - Houston 112:116
Indiana - Oklahoma 121:101
LA Clippers - Sacramento 89:102
Atlanta -San Antonio 119:114
Cleveland - Detroit 104:79
LA Lakers - Washington 99:92
Phoenix - Portland 93:87
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is