Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 22.3.2010
| 8:21
Obama fylgist grannt með háskólakörfuboltanum
Eftir Gunnar Valgeirsson í Bandaríkjunum, gvalg@mbl.iskörfuboltaheiminn hér í landi. Meira að segja Obama forseti tekur þátt í
dæminu, en hann hefur spáð í keppnina í sjónvarpsútsendingu. Ástæðan fyrir
vinsældum keppninnar er leikgleði leikmanna og óvænt úrslit ár hvert -
sérstaklega í tveimur fyrstu umferðunum.
Í ár var það tap Kansas - sem var talið sigurstranglegast allra 64 liðanna
- sem tapaði gegn Northern Iowa á laugardag, 69:67. Þetta voru ein
óvæntustu úrslit í sögu keppninnar, en Nothern Iowa leikur sérstaklega
agaðan varnarleik sem Kansas - með slatta af tilvonandi NBA leikmönnum -
hafði ekkert svar gegn.
Sextán-liða úrslitin fara fram um næstu helgi, en þar spila eftirfarandi
lið saman.
Nothern Iowa - Michigan State
Tennessee - Ohio State
Kentucky - Cornell
Washington - West Virginia
Syracuse - Butler
Kansas State - Brigham Young
Baylor - Saint Mary´s
Duke - Purdue
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






