Páll hættur með KR-inga

Páll Kolbeinsson stýrir KR ekki á næsta keppnistímabili.
Páll Kolbeinsson stýrir KR ekki á næsta keppnistímabili. Kristinn Ingvarsson

Páll Kolbeinsson heldur ekki áfram þjálfun karlaliðs KR í körfuknattleik. Hann greindi frá þessu í kvöld eftir að KR-liðið tapaði fyrir Snæfelli í oddaleik í undanúrslitum Íslandsmótsins á heimavelli sínum.

Páll tók við þjálfun KR-liðsins á síðasta sumri eftir að Benedikt Guðmundsson hætti.  Illa gekk að finna þjálfara í stað Benedikts og lét Páll því til leiðast að stýra KR-liðinu yfir eitt keppnistímabil. Það kemur í hlut Páls að leita að eftirmanni sínum þar sem hann er formaður meistaraflokksráðs körfuknattleiksdeildar KR. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert