Sigrún í atvinnumennsku í París

Sigrún Ámundadóttir. stækka

Sigrún Ámundadóttir. mbl.is/Guðmundur Karl

Morgunblaðið Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is
„Mér líst vel á þetta og ég hef stefnt að þessu á undanförnum árum. Ég tek stóra skrefið um helgina og yfirgef Ísland og á mánudaginn hefst atvinnumannaferillinn í París,“ sagði Sigrún Sjöfn Ámundadóttir við Morgunblaðið í gær en hún hefur samið við Olympique Sannois Saint-Gratien sem leikur í þriðju efstu deild, NF2.

Alls eru 56 lið í fjórum 14 liða riðlum í þessari deild en í NF1 deildinni þar fyrir ofan eru 16 lið, og í efstu deild, LFB eru 14 lið.

„Ég veit svo sem ekkert rosalega mikið um þetta lið en ég hef góða tilfinningu fyrir þessu.“ Sigrún hefur starfað sem flokksstjóri í unglingavinnunni í Borgarnesi í sumar og farið á æfingar austur fyrir fjall með Hamri í Hveragerði þar sem hún lék s.l. vetur. „Gústi (Ágúst Björgvinsson) hefur hjálpað mér í þessu og þetta var allt saman gert í samráði við Hamar. Ég hef æft mikið ein í Borgarnesi og þar hef ég lagt áherslu á lyftingar og hlaup. Maður er alveg að ná því að troða og það kemur vonandi von bráðar,“ sagði Sigrún og hló.

Hún hefur leikið með Skallagrími, Haukum, KR og Hamri hér á landi en Hamar tapaði gegn KR í úrslitum Iceland Express deildarinnar s.l. vor. Framherjinn skoraði 12 stig að meðaltali á síðustu leiktíð og tók 8,2 fráköst.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar


finnur.is