90 stig frá Miami þríeykinu

Dwayne Wade skorar tvö af 41 stigi sínu í leiknum …
Dwayne Wade skorar tvö af 41 stigi sínu í leiknum í nótt. Reuters

Stórstjörnunar Dwyane Wade, LeBron James og Chris Bosh skoruðu samanlagt 90 stig fyrir Miami Heat í 110:103 sigri á Indiana Pacers í NBA körfuboltanum í Bandaríkjunum í nótt.

Wade skoraði 41 stig og þar af 22 í fyrsta leikhlutanum. James gerði 27 stig og Bosh 22 stig.

Úrslit næturinnar:

Miami Heat - Indiana Pacers 110:103
Charlotte Bobcats - Chicago Bulls 94:106
Sacramento Kings - Oklahoma Thunder 96:126
Philadelphia 76ers - Memphis Grizzlies 91:102
Utah Jazz - Phoenix Suns 101:102
New Orleans Hornets - Golden State Warriors 89:102

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert