Ótrúlegur sigur Boston á Orlando

Hinn gamalreyndi bakvörður Steve Nash hjá Phoenix með boltann í leik liðsins við Dallas í ... stækka

Hinn gamalreyndi bakvörður Steve Nash hjá Phoenix með boltann í leik liðsins við Dallas í nótt. Reuters

Vængbrotið lið Boston Celtics vann ótrúlega stóran sigur á Orlando Magic í nótt, 87:56, í NBA-deildinni í körfubolta en lið Orlando hefur aldrei fyrr í NBA-sögu sinni skorað jafn fá stig í leik í deildinni.

Hjá Boston vantaði fimm leikmenn, þar á meðal Rajon Rondo og Ray Allen, en magnaður varnarleikur, þar sem liðið fékk aðeins 20 stig á sig allan seinni hálfleikinn, lagði grunninn að sigrinum. Paul Pierce skoraði 19 stig fyrir Boston og Dwight Howard 18 fyrir Orlando.

„Þeir léku okkur grátt og þó við eigum skilið að fá skömm í hattinn má ekki gleyma að hrósa leikmönnum Boston. Varnarleikur þeirra var hreinlega stórkostlegur," sagði Stan Van Gundy, þjálfari Orlando eftir leikinn.

Meistarar Dallas Mavericks halda áfram að laga stöðu sína og lögðu Phoenix Suns, 93:87. Shawn Marion skoraði 29 stig fyrir Dallas, en liðið lék án þýska risans Dirks Nowitzki sem er meiddur á hné. Dallas hefur nú haldið mótherjum sínum undir 100 stigum í 15 leikjum í röð sem  er félagsmet.

Úrslitin í nótt:

Philadelphia - Washington 103:83
Boston - Orlando 87:56
Chicago - New Jersey 110:95
Milwaukee - Atlanta 92:97
New Orleans - San Antonio 102:104
Oklahoma City - Detroit 99:79
Minnesota - Houston 92:107
Dallas - Phoenix 93:87
Portland - Sacramento 101:89
Golden State - Memphis 90:91

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is