Stórleikur Bosh í sigri Miami
Chris Bosh skoraði 18 stig í fjórða leikhluta og 35 stig alls þegar Miami Heat sigraði Cleveland Cavaliers, 92:85, í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.
Framganga Bosh sá til þess að Miami náði að hrista kröftuga mótspyrnu Cleveland af sér á lokasprettinum. Hann gerði 12 stig á síðustu fjórum og hálfri mínútunni. LeBron James skoraði 18 stig en Dwyane Wade missti af fimmta leiknum í röð vegna meiðsla. Nýliðinn Kyrie Irving skoraði 17 stig fyrir Cleveland.
Dwight Howard er orðinn stigahæsti leikmaður Orlando Magic í sögunni en hann fór upp fyrir Nick Anderson með því að skora 14 stig í útisigri á Indiana Pacers, 102:83. Howard hefur nú gert 10.657 stig fyrir liðið og náði metinu með tilþrifum þegar hann tróð boltanum af krafti í þriðja leikhluta. Ryan Anderson var hinsvegar stigahæstur hjá Orlando með 24 stig.
Úrslitin í nótt:
Charlotte - New York 78:111
Indiana - Orlando 83:102
Miami - Cleveland 92:85
Phoenix - Toronto 96:99
Portland - Memphis 97:84






