Einar: Þurfti engan stærðfræðing

Einar Jóhannsson lengst til hægri ásamt Friðriki Ragnarssyni en þeir eru þjálfarar Njarðvíkur. stækka

Einar Jóhannsson lengst til hægri ásamt Friðriki Ragnarssyni en þeir eru þjálfarar Njarðvíkur. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

mbl.is Ólafur Már Þórisson, omt@mbl.is

Einar Jóhannsson annar þjálfara Njarðvíkur var virkilega ánægður með sína menn eftir sigur á Haukum í Iceland Express deild karla í körfuknattleik í kvöld. Jafnt var á öllum tölum þangað til tvær mínútur voru eftir en þá settu Njarðvíkingar í annan gír og höfðu að lokum 10 stiga sigur 85:75.

„Það þurfti engan stærðfræðing til að sjá að þessi leikur var risastór fyrir bæði lið. Við erum að koma okkur átta stigum frá þeim og erum með betri innbyrðisviðureignir. Það má því segja að við séum að koma þeim fimm leikjum frá okkur þegar níu leikir eru eftir.“

Spurður hvort hann væri eitthvað farinn að horfa til úrslitakeppninnar þar sem liðið er nú jafnt ÍR og Tindastóli í 7. til 9. sæti deildarinnar, sagði Einar; „Við vitum að þetta er ekki búið en þetta var miklu meira en tveggja stiga leikur. Við horfðum þannig á þetta að tap í kvöld þýddi barning og baráttu við að halda okkar sæti í deildinni. Sigur væri hinsvegar ekki bara að færa okkur langt frá fallbaráttunni heldur koma okkur nær úrslitakeppninni og þeirri baráttu sem þar er.“

Hann bætti við að miðað við þennan hóp væri það mikið afrek. „Við myndum líta á það sem frábæran vetur fyrir átta af tólf strákum sem eru að spila í þessari deild í fyrsta skipti.“

Hann sagðist jafnfram stoltur af strákunum að koma á erfiðan útivöll og fara heim Reykjanesbrautina með stigin tvö. Christopher Smith leikmaður Hauka fékk sína 5. villu þegar um tvær og hálf mínúta var eftir og sagði Einar það hafa auðveldað sínum mönnum verkið.

„Hann var framúrskarandi og var með lið sitt á herðunum í kvöld, þá sérstaklega í fyrri hálfleik, það verður að segjast alveg eins og er. Þegar hann var farinn var þeirra beittasta vopn í þessum leik í það minnsta, farið. Sóknarleikurinn varð einhæfari og við náðum að halda vel aftur af öðrum leikmönnum Hauka síðustu mínúturnar.“



  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is