Fyrsta tap Chicago á heimavelli

Dahntay Jones hjá Indiana sækir að körfu Chicago þar sem Carlos Boozer og Joakim Noah ... stækka

Dahntay Jones hjá Indiana sækir að körfu Chicago þar sem Carlos Boozer og Joakim Noah eru til varnar. Reuters

Chicago Bulls tapaði í nótt sínum fyrsta heimaleik á þessu keppnistímabili í NBA-deildinni í körfuknattleik þegar Indiana Pacers kom í heimsókn. Lokatölur í United Center voru 90:95.

Danny Granger skoraði 22 stig fyrir Indiana og Roy Hibbert 20 en Derrick Rose gerði 24 stig fyrir Chicago, sem saknaði Luol Dengs en hann missti af leiknum vegna meiðsla.

LA Lakers lagði LA Clippers í borgarslag í Los Angeles, 96:91, og jafnaði þar metin í leikjum liðanna í vetur í 1:1. Þetta var tólfti leikurinn í röð þar sem Lakers nær ekki 100 stigum en það kom ekki að sök í þetta sinn. Kobe Bryant skoraði 24 stig fyrir Lakers og Blake Griffin 26 stig fyrir Clippers.

LeBron James skoraði 32 stig fyrir Miami Heat sem vann Detroit Pistons naumlega á útivelli, 101:98. Þar af skoraði hann sex stig úr vítaskotum á síðustu 80 sekúndum leiksins.

Úrslitin í nótt:

Philadelphia - New Jersey 90:97 (Eftir framlengingu)
Washington - Charlotte 92:75
Cleveland - New York 91:81
Detroit - Miami 98:101
Chicago - Indiana 90:95
Houston - Milwaukee 99:105
Oklahoma City - New Orleans 101:91
Dallas - Minnesota 90:105
San Antonio - Atlanta 105:83
Utah - Toronto 106:111 (Eftir tvær framlengingar)
Sacramento - Denver 93:122
LA Lakers - LA Clippers 96:91
Golden State - Portland 101:93

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is