Pétur: Getur skipt miklu máli
Haukar þurfa að vinna upp forskot liðanna fyrir ofan þá eigi ekki illa að fara. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Ólafur Már Þórisson, omt@mbl.is„Þetta var svona leikur sem getur skipt miklu máli þegar upp er staðið. Að sama skapi erum við á sama staðnum og fyrir leikinn, við þurfum að fara að vinna til að
halda okkur uppi,“ sagði Pétur Rúðrik Guðmundsson þjálfari Hauka eftir 85:75, tap fyrir Njarðvík í Iceland Express deild karla.
Bæði lið voru í fallbaráttu fyrir leikinn en staða þeirra eftir hann er ólík. Njarðvíkingar horfa nú til úrslitakeppninnar á meðan Haukar drógust enn frekar í þá baráttu. Þeir eru nú með fjögur stig eftir þrettán leiki. „Við erum með það gott lið að mínu mati að við getum vel unnið. Við þurfum að trúa því og fara í leikina til að sigra,“ sagði Pétur jafnframt.
Pétur hefur aðeins fengið tvö stig af 14 mögulegum síðan hann tók við stjórnartaumunum um miðjan nóvember. Spurður hvort það væri farið að setjast á sálina hjá leikmönnum og jafnvel honum sjálfum sagði hann; „Þetta tekur á, ég veit hvernig á að bregðast við sem leikmaður, ég þekki það. Sem þjálfari þá er ég ekki alveg eins vanur því og það er erfiðara verandi fyrir utan völlinn.
Við erum líka með ungt lið sem er með þessu að vinna sér inn reynslu. Þetta vill gerast fyrir lið sem eru byggð svona upp. Nú þurfa leikmenn hinsvegar að gleyma því hvað þeir eru búnir að spila marga leiki, hvað þeir eru gamlir og fara bara að spila körfubolta og hafa gaman af því.“
Pétur sagðist reyna að berja sjálfstrausti í sína stráka og ekki væri hægt að taka það af mönnum ef þær væru góðir í körfubolta. „Ef þú ert góður í körfubolta þá ertu góður í körfubolta, sama hvað þú ert gamall eða hvað þú hefur litla reynslu. Þetta er það sem við þurfum að átta okkur á þegar við komum inn á völlinn í þessum níu leikjum sem við eigum eftir.“
Haukar eru með fjögur stig í 11. sæti, sex stigum á eftir Fjölni sem á þó leik til góða og er í 10. sæti.






