Boston hrökk í gang í seinni hálfleik
Tveir leikir fóru fram í bandarísku NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt. Boston bar sigurorð af Orlando á útivelli, 91:83 og LA Clippers hafði betur gegn Memphis Grizzlies, 98:91.
Paul Pierce var atkvæðamestur í liði Boston en hann skoraði 24 stig og næstur kom Kevin Garnett sem skoraði 12 stig og tók 10 fráköst. Orlando hafði undirtökin framan af leik. Liðið var yfir eftir fyrsta leikhlutann, 32:16 og hafði forystu í hálfleik, 58:32.
En liðsmenn Boston voru ekki af baki dottnir. Þeir tóku leikinn í sínar hendur og sérstaklega var varnarleikur liðsins sterkur en Orlando skoraði til að mynda ekki nema 8 stig í fjórða og síðasta leikhlutanum. Dwight Howard var stigahæstur í liði Orlando með 16 stig og þá tók hann 16 fráköst.
Blake Griffin var stigahæstur í liði Clippers í sigrinum á Memphis. Hann skoraði 20 stig. Rudy Gay var atkvæðamestur hjá Memphis með 24 stig.






