Toppliðin öll með sigra

Sigurður Ingimundarson þjálfari Keflavíkur ferðaðist með sína stráka til Sauðárkróks í dag. stækka

Sigurður Ingimundarson þjálfari Keflavíkur ferðaðist með sína stráka til Sauðárkróks í dag. Morgunblaðið/Árni Sæberg

Grindavík hélt áfram sigurgöngu sinni í Iceland Express-deild karla í körfuknattleik í kvöld þegar liðið vann Fjölni á heimavelli 107:73. Fjölnir náði að hanga í heimamönnum í fyrri hálfleik en í þeim síðari skelltu Grindvíkingar í lás og héldu áfram að raða niður skotunum.

Tindastóll tók svo á móti Keflavík á Sauðárkróki og þar höfðu gestirnir betur. Tindastóll sem hefur verið á miklu flugi að undanförnu brotlenti á heimavelli en lokatölur voru 91:72. Keflvíkingar höfðu frumkvæðið allan leikinn.

Stjarnan gaf svo ekkert eftir í baráttunni um annað sætið við Keflavík þegar liðið vann Val á útivelli 96:71. Liðin eru sem fyrr jöfn að stigum með 18 stig, sex stigum á eftir Grindavík. Valur á svo enn eftir að fá stig og situr í neðsta sæti, fjórum stigum frá Haukum.

Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu hér að neðan. Þá má einnig finna nánari tölfræði með því að smella hér.

Tindastóll - Keflavík 72:91 LEIK LOKIÐ

Valur - Stjarnan 71:96 LEIK LOKIÐ

Grindavík - Fjölnir 107:73 LEIK LOKIÐ

Tölfræði:

Valur - Stjarnan 71:96

Vodafonehöllin, Iceland Express deild karla, 27. janúar 2012.

Gangur leiksins:: 0:4, 4:12, 13:19, 13:24, 24:37, 29:44, 29:46, 33:53, 37:61, 44:66, 51:73, 56:75, 62:87, 63:87, 67:91, 71:96.

Valur: Ragnar Gylfason 14, Birgir Björn Pétursson 13/8 fráköst, Austin Magnus Bracey 13, Igor Tratnik 13/6 fráköst, Alexander Dungal 6, Kristinn Ólafsson 4, Hamid Dicko 3, Benedikt Blöndal 3, Bergur Ástráðsson 2.

Fráköst: 11 í vörn, 10 í sókn.

Stjarnan: Renato Lindmets 20/7 fráköst, Keith Cothran 16, Marvin Valdimarsson 15, Jovan Zdravevski 13, Justin Shouse 11/9 stoðsendingar, Guðjón Lárusson 8, Fannar Freyr Helgason 7/5 fráköst, Dagur Kár Jónsson 2, Sigurjón Örn Lárusson 2, Magnús Bjarki Guðmundsson 2.

Fráköst: 14 í vörn, 9 í sókn.

Dómarar: Einar Þór Skarphéðinsson, Jakob Arni Isleifsson.

Tindastóll - Keflavík 72:91

Sauðárkrókur, Iceland Express deild karla, 27. janúar 2012.

Gangur leiksins:: 2:8, 10:11, 20:19, 20:25, 22:31, 25:41, 32:47, 34:50, 34:61, 36:62, 40:66, 42:71, 52:77, 56:87, 70:89, 72:91.

Tindastóll: Friðrik Hreinsson 15/6 stoðsendingar, Maurice Miller 15, Svavar Atli Birgisson 14/4 fráköst, Curtis Allen 8/6 fráköst/6 stolnir, Loftur Páll Eiríksson 6, Helgi Rafn Viggósson 6/5 fráköst, Þröstur Leó Jóhannsson 5/4 fráköst, Ingvi Rafn Ingvarsson 2/5 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 1.

Fráköst: 21 í vörn, 10 í sókn.

Keflavík: Magnús Þór Gunnarsson 25/10 fráköst, Valur Orri Valsson 20, Jarryd Cole 15/9 fráköst, Halldór Örn Halldórsson 14/8 fráköst, Charles Michael Parker 9/9 fráköst/5 stoðsendingar, Almar Stefán Guðbrandsson 6/4 fráköst, Kristoffer Douse 2.

Fráköst: 35 í vörn, 11 í sókn.

Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson.

Grindavík - Fjölnir 107:73

Grindavík, Iceland Express deild karla, 27. janúar 2012.

Gangur leiksins:: 5:4, 17:10, 21:19, 29:25, 40:29, 44:31, 49:37, 50:41, 57:44, 67:50, 75:53, 81:57, 89:62, 95:67, 103:69, 107:73.

Grindavík: J'Nathan Bullock 26/17 fráköst, Páll Axel Vilbergsson 17/5 fráköst, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 14, Giordan Watson 11/4 fráköst, Ómar Örn Sævarsson 10/10 fráköst, Ryan Pettinella 9/7 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 9, Björn Steinar Brynjólfsson 5, Þorleifur Ólafsson 5/5 stoðsendingar, Ólafur Ólafsson 1.

Fráköst: 31 í vörn, 21 í sókn.

Fjölnir: Björgvin Hafþór Ríkharðsson 19/4 fráköst, Arnþór Freyr Guðmundsson 16, Nathan Walkup 13/9 fráköst, Calvin O'Neal 13, Jón Sverrisson 10/7 fráköst, Trausti Eiríksson 2.

Fráköst: 19 í vörn, 6 í sókn.

Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson, Halldor Geir Jensson.

20.22 Svo virðist sem Keflvíkingar séu að fara með sigur af hólmi gegn Tindastóli en staðan þar þegar tvær mínútur eru eftir af þriðja leikhluta er orðin 69:40. Ekkert gengur upp í sóknarleik heimamanna og að sama skapi er vörn Keflvíkinga góð. Það eru engin óvænt tíðindi í viðureign Vals og Stjörnunnar en staðan þar er 77:58 gestunum í vil í byrjun fjórða leikhluta. Grindavíkingar hafa svo heldur betur tekið við sér gegn Fjölni en þar er staðan 81:57.

19.52 Keflvíkingar eru með 16 stiga forskot gegn Stólunum þegar liðin ganga til búningsherbergja. Tindastóll sem hefur aðeins tapað einum leik af síðustu sex í deildinni þarf heldur betur að taka sig á í síðari hálfleik eigi ekki illa að fara. Keflvíkingar spila að sama skapi vel. Valsmenn eiga svo í vök að verjast gegn Stjörnunni sem er með 20 stiga forskot í hálfleik, 33:53. Grindvíkingar eru svo í þægilegum málum gegn Fjölni en þar er staðan 50:41.

19.35. Það byrjar ekki vel hjá heimamönnum í Tindastóli sem skorað hafa fimm stigum minna en Keflvíkingar eftir 1. leikhlutann, 20:25. Valsmenn eru hinsvegar í enn verri málum gegn Stjörnunni en þar er staðan 13:26 eftir 1. leikhlutann. Í Grindavík hafa heimamenn yfir gegn Fjölni, 29:25.  

19.17 Ferðalagið virðist ekkert sitja í leikmönnum Keflavíkur sem skora fyrstu 4 stig leiksins gegn Stólunum fyrir norðan.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is