Íþróttir
|
Körfubolti
| Morgunblaðið
| 28.1.2012
| 8:10
| Uppfært
8:30
Gengur ekkert án Pavels
Meistararnir í sænska körfuboltanum, Sundsvall, töpuðu sínum fjórða leik í röð í gær þegar liðið heimsótti Norrköping. Lokatölur voru 97:96 en Jakob Örn Sigurðarson átti stórleik fyrir Sundsvall sem dugði þó ekki til.
Hann var með 28 stig og hitti úr 6 af 9 skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna. Hlynur Bæringsson skoraði tíu stigum minna eða 18 og átti einnig fínan leik.
Sundsvall hefur ekki unnið síðan Pavel Ermolinskij meiddist og munar þar greinilega um minna. Taphrinan hefur sent liðið niður í 5. sæti deildarinnar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






