Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 28.1.2012
| 13:55
| Uppfært
29.1.2012
19:39
Hörkuleikur í Hólminum
Fjórir leikir verða í Iceland Express-deild kvenna í körfuknattleik í dag, meðal annars leikur Snæfells og Njarðvíkur sem hefst klukkan tvö.
Hinir þrír leikirnir hefjast allir klukkan 16.30. Þá mætast Fjölnir og Hamar í Dalhúsum í Grafarvogi, Valur tekur á móti KR á Hlíðarenda og í Keflavík verða Haukar í heimsókn.
Staðan fyrir 19. umferðina sem hefst í dag, er þannig að Keflavík er með 30 stig, Njarðvík 26, KR og Haukar 22, Snæfell 16 stig, Valur 12, Fjölnir 10 og Hamar er með 6 stig.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






