Valur skellti KR

Guðbjörg Sverrisdóttir skoraði 17 stig fyrir Val. stækka

Guðbjörg Sverrisdóttir skoraði 17 stig fyrir Val. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Valur lagði KR í Iceland Express-deild kvenna í körfuknattleik í dag 86:57 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 43:29 fyrir Val. Keflavík lagði Hauka naumlega og Hamar vann Fjölni.

Melissa Leichlitner var stigahæst hjá Val með 21 stig og Guðbjörg Sverrisdóttir kom þar á ertir með 17 stig en alls gerðu sex leikmenn Vals 10 stig eða fleiri. Hjá KR var Hafrún Hálfdánardóttir með 14 stig og Sigrún Ásmundsdóttir 13.

Mikil spenna var í lok leiks Keflavíkur og Hauka í Keflavík en eftir þrjá leikhluta höfðu Hafnfirðingar gert 61 stig en Keflvíkingar 49, en þeir komust yfir þegar 10 sekúndur voru til leiksloka, en þá setti Birna Valgarðsdóttir niður þriggja stiga skot, 77:75. Lokatölur 78:75.

Hamar lagði Fjölni í Grafarvoginum, líklegast 79:68, en bein lýsing frá leiknum fraus þegar tæpar tvær mínútur voru eftir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is