Ekkert gengur hjá Lakers
Los Angeles Lakers tapaði sínum sjöunda leik á útivelli í átta leikjum þegar liðið lá fyrir Milwaukee Bucks, 100:89, í bandarísku NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.
Drew Gooden skoraði 23 stig fyrir Milwaukee en hjá Lakers var Kobe Bryant stigahæstur með 27 stig og Pau Gasol skoraði 12 og tók 15 frákast. Þetta var fjórði tapleikur Lakers í síðustu fimm leikjum.
Houston vann öruggan sigur á New York, 97:84, þar sem Chase Budinger skoraði 19 stig fyrir Houston og Goran Dragic en þetta var níundi sigur liðsins í síðustu 10 leikjum. Amare Stoudemire skoraði 23 stig fyrir New York sem lék án Carmelo Anthony.
Úrslitin í nótt:
Washington - Charlotte 102:99
Philadelphia - Detroit 95:74
Houston - New York 97:84
Milwaukee - LA Lakders 100:89
Phoenix - Memphis 86:84
Sacramento - Utah 93:96






