Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 29.1.2012
| 20:44
Jón Arnór með sex stig í sigri Zaragoza
Jón Arnór Stefánsson lét lítið fyrir sér fara þegar lið hans CAI Zaragoza vann Rueda í spænsku A-deildinni í körfuknattleik, 73:58. Jón Arnór var með 6 stig þær rúmar 20 mínútur sem hann lék. Það var þó helst frábær varnarleikur Zaragoza sem gerði útslagið.
Jón Arnór hitti úr einu af þremur þriggja stiga skotum sínum og einu af fimm skotum sínum í teignum. Þá kom sjötta stigið af vítalínunni. Hann tók auk þess fjögur fráköst og varði eitt skot.
Haukur Helgi Pálsson var einnig á ferðinni í dag með liði sínu Assignia sem tapaði á útivelli fyrir Joventut 92:79. Haukur Helgi lék í sjö mínútur og skoraði 3 stig. Hann tók auk þess eitt frákast.
Zaragoza er í 11. sæti deildarinnar með 18 stig en Assignia er í því 12. með 16 stig.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






