NBA: Kobe og LeBron í hörkustuði
Kobe Bryant átti stórleik með liði sínu, Los Angeles Lakers, þegar það bar sigurorð af Minnesota, 106:101, í bandarísku NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.
Kobe skoraði 35 stig og tók 14 fráköst og Spánverjinn Pau Gason setti niður 28 stig. Þetta var annar útisigur Lakers í níu leikjum á tímabilinu. Minnesota hefur tapað 16 leikjum í röð gegn Lakers en liðið hrósaði síðast sigri gegn því í mars 2007.
Annar snillingur átti flottan leik en LeBron James skoraði 35 stig og tók 11 fráköst þegar Miami lagði Chicago, 97:93. Chris Bosh var með 24 stig. Hjá Chicago var Derrick Rose atkvæðamestur með 34 stig.
Nýliðinn Kyrie Irving tryggði Cleveland sigur á Boston, 88:87, með körfu rúmum tveimur sekúndum fyrir leikslok. Irving var stigahæstur sinna manna með 23 stig en hjá Boston var Ray Allen stigahæstur með 23 stig.
Meistarar Dallas mörðu SA Spurs, 101:100, í framlengdum leik. Jason Terry skoraði 34 stig fyrir Dallas sem endurheimti Þjóðverjann Dirk Nowitski sem hefur verið frá í síðustu leikjum. Hann skoraði 10 stig í leiknum og tók 13 fráköst. Gary Neal var stigahæstur hjá Spurs með 19 stig.
Úrslitin í nótt:
Boston - Cleveland 87:88
New Jersey - Toronto 73:94
Orlando - Indiana 85:106
Dallas - SA Spurs 101:100
New Orleans - Atlanta 72:94
Minnesota - LA Lakers 101:106
Denver - LA Clippers 105:109






