Átján stiga sigur KR á Haukum
KR lagði Hauka all örugglega, 72:54, í uppgjöri liðanna í þriðja og fjórða sæti úrvalsdeildar kvenna í körfuknattleik, Iceland Express-deildarinnar, í Vesturbænum í kvöld.
KR er þá komið með 24 stig í þriðja sætinu en Haukar eru í því fjórða með 22 stig. Fyrir ofan eru Keflavík með 32 stig og Njarðvík með 28 stig.
Tölfræði leiksins:
KR - Haukar 72:54
DHL-höllin, Iceland Express-deild kvenna, 31. janúar 2012.
Gangur leiksins: 6:7, 12:10, 16:15, 20:19, 27:21, 29:21, 33:24, 39:27, 41:32, 45:34, 50:40, 55:43, 60:47, 63:51, 67:53, 72:54.
KR: Bryndís Guðmundsdóttir 19/13 fráköst/3 varin skot, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 17/8 fráköst, Erica Prosser 17/8 fráköst/5 stoðsendingar, Margrét Kara Sturludóttir 11/14 fráköst, Hafrún Hálfdánardóttir 5/7 fráköst/3 varin skot, Anna María Ævarsdóttir 2, Rannveig Ólafsdóttir 1.
Fráköst: 41 í vörn, 13 í sókn.
Haukar: Jence Ann Rhoads 18/11 fráköst/9 stoðsendingar, Margrét Rósa Hálfdánardóttir 10/5 fráköst, Hope Elam 6/7 fráköst, Íris Sverrisdóttir 6, Guðrún Ósk Ámundadóttir 6/5 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 4, María Lind Sigurðardóttir 2, Sara Pálmadóttir 2/4 fráköst.
Fráköst: 23 í vörn, 14 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Thorsteinn Johann Thorsteinsson.






