NBA: Rose með stórleik í sigri Chicago
Meistarar Dallas unnu lið Phoenix Suns í áttunda leiknum í röð þegar þau mættust í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt. Liðsmenn Dallas voru í stuði en samtals skoruðu þeir 14 þriggja stiga körfur í leiknum.
Delonte West var stigahæstur leikmanna Dallas með 25 stig og næstur kom Vince Carter með 21 stig.
LeBron James og Dwyane Wade skoruðu 22 stig hvor fyrir Miami sem vann sigur á New Orleans 109:95. Jarrett Jack og Carl Landry voru með 14 stig hvor fyrir New Orleans sem hefur tapað 13 af síðustu 14 leikjum sínum.
Derrick Rose átti stórleik fyrir Chicago í sigri þess á Washington, 98:88. Rose skoraði 35 stig og átti 8 stoðsendingar en þetta var sjöundi sigurleikur Chicago í röð gegn Washington. John Wall var stigahæstur leikmanna Washington með 20 stig.
Úrslitin í nótt:
Philadelphia - Orlando 74:69
Washington - Chicago 88:98
Miami - New Orleans 109:95
Memphis - SA Spurs 73:83
Houston - Minnesota 108:120
Utah - Portland 93:89
Phoenix - Dallas 99:122
LA Clippers - Oklahoma 112:100






