Snæfell setti strik í toppbaráttu Keflavíkur

Bæði Valur og Keflavík eru á ferðinni í kvöld en þó á sitthvorum staðnum. Keflavík ... stækka

Bæði Valur og Keflavík eru á ferðinni í kvöld en þó á sitthvorum staðnum. Keflavík í Stykkishólmi og Valur í Hveragerði. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Keflavík missteig sig í toppbaráttu Iceland Express-deildar kvenna í körfuknattleik þegar liðið heimsótti Snæfell. Heimastúlkur byrjuðu mun betur og höfðu yfirhöndina allan leikinn. Lokatölur voru 91:83 en nýr leikmaður Snæfells Jordan Lee Murphree átti stórleik og skoraði 31 stig. 

Á sama tíma áttust Njarðvík og Fjölnir við en Njarðvík var fyrir leiki kvöldsins fjórum stigum á eftir Keflavík í öðru sæti. Njarðvík nýtti sér tap Keflavíkur mjög vel og minnkaði forskotið í tvö stig með öruggum 33 stiga sigri 95:62.

Í Hveragerði hefur gengi liðsins heldur betur snúist við að undanförnu með tilkomu nýrra leikmanna en þær unnu Val 86:83. Valur byrjaði mun betur en leikmenn Hamars jöfnuðu metin í lok þriðja leikhluta. Þær gengu svo á lagið í þeim fjórða.

Fylgst með gangi mála í beinni textalýsingu hér að neðan.

Snæfell - Keflavík 91:83 LEIK LOKIÐ

Njarðvík - Fjölnir 95:62 LEIK LOKIÐ

Hamar - Valur 86:83 LEIK LOKIIÐ

Tölfræði:

Njarðvík - Fjölnir 95:62

Njarðvík, Iceland Express-deild kvenna, 01. febrúar 2012.

Gangur leiksins:: 9:2, 14:6, 26:8, 30:10, 33:12, 33:19, 44:23, 49:29, 55:35, 61:41, 67:43, 74:45, 78:47, 80:52, 85:58, 95:62.

Njarðvík: Lele Hardy 24/17 fráköst/5 stoðsendingar, Shanae Baker-Brice 20/5 stoðsendingar, Petrúnella Skúladóttir 14/5 fráköst, Ólöf Helga Pálsdóttir 11, Salbjörg Sævarsdóttir 9/9 fráköst, Erna Hákonardóttir 8, Andrea Björt Ólafsdóttir 4, Sara Dögg Margeirsdóttir 3, Harpa Hallgrímsdóttir 2.

Fráköst: 22 í vörn, 20 í sókn.

Fjölnir: Brittney Jones 33/6 fráköst/7 stoðsendingar, Bergdís Ragnarsdóttir 12/7 fráköst/5 stolnir/3 varin skot, Eva María Emilsdóttir 6/5 fráköst, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 5/7 fráköst, Erla Sif Kristinsdóttir 4/4 fráköst, Birna Eiríksdóttir 2.

Fráköst: 22 í vörn, 8 í sókn.

Dómarar: Jakob Árni Ísleifsson, Halldór Geir Jensson.

Hamar - Valur 86:83

Hveragerði, Iceland Express deild kvenna, 01. febrúar 2012.

Gangur leiksins:: 2:5, 7:13, 13:22, 15:27, 22:34, 29:34, 35:40, 39:44, 41:50, 50:58, 59:58, 63:63, 68:65, 74:69, 82:76, 86:83.

Hamar: Katherine Virginia Graham 26/6 fráköst, Samantha Murphy 24/5 fráköst/7 stoðsendingar, Fanney Lind Guðmundsdóttir 14, Íris Ásgeirsdóttir 11, Álfhildur Þorsteinsdóttir 5, Marín Laufey Davíðsdóttir 4, Jenný Harðardóttir 2.

Fráköst: 15 í vörn, 8 í sókn.

Valur: Kristrún Sigurjónsdóttir 21/4 fráköst, María Ben Erlingsdóttir 16/5 fráköst, María Björnsdóttir 16, Margrét Ósk Einarsdóttir 14/8 fráköst/6 stoðsendingar/3 varin skot, Guðbjörg Sverrisdóttir 13, Signý Hermannsdóttir 3/4 fráköst.

Fráköst: 18 í vörn, 7 í sókn.

Dómarar: Björgvin Rúnarsson, Ísak Ernir Kristinsson.

Snæfell - Keflavík 91:83

Stykkishólmur, Iceland Express-deild kvenna, 01. febrúar 2012.

Gangur leiksins:: 8:0, 14:6, 19:13, 29:18, 29:20, 37:23, 39:26, 45:38, 50:40, 52:45, 58:53, 63:59, 72:66, 77:70, 83:76, 91:83.

Snæfell: Jordan Lee Murphree 31/6 fráköst/10 stolnir, Alda Leif Jónsdóttir 17/9 fráköst, Kieraah Marlow 16/10 fráköst/7 stoðsendingar, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 10/6 fráköst, Hildur Sigurdardottir 9/9 fráköst/7 stoðsendingar, Hildur Björg Kjartansdóttir 8/4 fráköst.

Fráköst: 28 í vörn, 16 í sókn.

Keflavík: Pálína Gunnlaugsdóttir 33/4 fráköst, Jaleesa Butler 18/14 fráköst, Shanika Chantel Butler 13/6 stoðsendingar, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 11/5 fráköst, Helga Hallgrímsdóttir 3/9 fráköst, Hrund Jóhannsdóttir 3, Sara Rún Hinriksdóttir 2.

Fráköst: 21 í vörn, 15 í sókn.

Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Steinar Orri Sigurðsson.

20:59 Þá er hinum tveimur leikjunum lokið en Snæfell vann ótrúlegan sigur á Keflavík 91:83. Þá vann Hamar lið Vals eftir frábæran þriðja og fjórða leikhluta. 86:83.

20.43 Þegar fjórði leikhluti er hálfnaður hefur Hamar komist yfir 74:67. Frábær kafli hjá heimastúlkum þessar síðustu mínútur. Snæfell hefur nú 7 stiga forskot gegn Keflavík þegar 5 mínútur eru eftir 77:70. 

20.35 Hamar hefur jafnað metin í lok þriðja leikhluta, 63:63 gegn Val en liðið hefur verið skrefinu á eftir alveg frá upphafi. Það sama er að gerast í Stykkishólmi þar sem Keflavík hefur saxað verulega á forskot Snæfells en staðan þar er 63:59. Þá hafði Njarðvík öruggan sigur á Fjölni 95:62 en þeim leik er lokið.

20.17 Leikur Njarðvíkur og Fjölnis hefur aldrei verið spennandi og enn síður nú eftir þriðja leikhlutann. Staðan er 74:45 og nánast hægt að bóka sigur þeirra grænu og hvítu. Þriðji leikhluti er nýhafinn í hinum tveimur leikjunum þar sem Snæfell og Valur eru yfir.

20.04 Það er kominn hálfleikur í viðureign Snæfells og Keflavíkur. Þar hafa heimastúlkur enn gott forskot en staðan er 37:23. Það er lítið skorað og í raun ótrúlegt að Snæfell haldi efsta liði deildarinnar í 23 stigum í fyrri hálfleik. Heldur hefur dregið saman með Hamri og Val en staðan þar er 41:44 í hálfleik.

19.50 Það er kominn hálfleikur í Njarðvík þar sem heimstúlkur og Fjölnir eigast við. Enn helst 20 stiga munur á liðinum eins og hann var eftir fyrsta leikhluta. Njarðvík hefur hinsvegar aðeins hægt á sér í sóknarleiknum en Fjölnir gefið í. Staðan er 49:29. Þegar fjórar mínútur eru til hálfleiks í viðureign Snæfells og Keflavíkur hafa heimstúlkur enn undirtökin, 37:23. Í Hveragerði er staðan 27:34, Val í vil þegar um fimm mínútur eru eftir af öðrum leikhluta.

19.35 Njarðvík ætlar greinilega ekki að gefa Fjölni minnsta möguleika á að taka stigin tvö sem liðin berjast um í kvöld. Staðan eftir fyrsta leikhluta er 30:10, hreint út sagt ótrúlegar tölur. Lele Hardy er með tæpan helming stiga Njarðvíkur eða 14 en hún hefur auk þess tekið 7 fráköst. Snæfell er að spila mjög vel gegn efsta liði deildarinnar, Keflavík. Staðan þar er 29:18. 
Í Hveragerði eiga heimastúlkur í Hamri í miklum erfiðleikum með Valsliðið en staðan er 13:22 Val í vil. Enn eru þó um tvær mínútur eftir af fyrsta leikhluta í Hveragerði.

19.21 Snæfell byrjar af krafti og skorar fyrstu sex stig leiksins og staðan því 6:0. Ætli ferðalagið hafi farið illa í leikmenn Keflavíkur? Í Njarðvík auka heimstúlkur enn forskotið sem er nú 8 stig, 14:6. Engin tíðindi hafa enn borist úr leik Hamars og Vals.

19.18 Þá eru leikirnir þrír byrjaðir en í Njarðvík eru þrjár mínútur liðnar og staðan þar strax orðin 9:4. Snæfell skorar hinsvegar fyrstu stigin í Stykkishólmi og staðan þar 2:0.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is