NBA:40 stig frá LeBron dugði ekki til
Boston lék Toronto grátt þegar liðin áttust við í bandarísku NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt. Boston vann leikinn með 36 stiga mun, 100:64. Meistarar Dallas biðu lægri hlut fyrir Oklahoma og Miami tapaði fyrir Milwaukee.
Paul Pierce skoraði 17 stig fyrir Bolston og þeir Ray Allen og Chris Wilcox voru með 12 stig hvor fyrir Boston sem hefur unnið sex af síðustu sjö leikjum sínum.
Russell Westbrook var maðurinn á bakvið sigur Oklahoma á Dallas, 95:86. Hann skoraði 33 stig og þar af sex á síðustu mínútu leiksins. Kevin Durant kom næstur með 23 stig en hjá Dallas var Jason Terry atkvæðamestur með 25 stig.
Milwaukee hafði betur gegn Miami á heimavelli, 105:97, þar sem Brandon Jennings skoraði 31 stig fyrir Milwaukee, þar af 20 í seinni hálfleik. Það dugði ekki fyrir Miami að LeBron James átti stórleik en hann skoraði 40 stig og komu 24 þeirra í fyrsta leikhlutanum.
Úrslitin í nótt:
Philadelphia - Chicago 98:82
Orlando - Washington 109:103
Boston - Toronto 100:64
New Jersey - Detroit 99:96
Milwaukee - Miami 105:97
Dallas - Oklahoma 86:95
Minnesota - Indiana 99:109
SA Spurs - Houston 99:91
Portland - Charlotte 112:68
Utah Jazz - LA Clippers 105:107






