Snæfell lagði Þór í framlengingu

Stjarnan mætir Haukum og Keflavík leikur við Val. stækka

Stjarnan mætir Haukum og Keflavík leikur við Val. mbl.is/Árni Sæberg

 Snæfell sigraði Þór frá Þorlákshöfn í framlengdum leik í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, Iceland-Express deildinni, 93:86 í Stykkishólmi í kvöld og topplið Grindavíkur og Stjörnunnar knúðu fram sigra á ÍR og Haukum eftir að hafa verið undir lengst af.

Grindavík er með 26 stig á toppnum eftir leiki kvöldsins. Stjarnan er með 20, Keflavík 20, KR 18, Þór Þ. 16, Snæfell 16, ÍR 12, Tindastóll 12, Njarðvík 12, Fjölnir 12, Haukar 4 og Valur 0.

Marquis Hall var bjargvættur Snæfells gegn Þór en hann jafnaði í blálokin í venjulegum leiktíma, 76:76, eftir að liðin höfðu verið yfir til skiptis allan tímann. Hall skoraði 24 stig fyrir Snæfell og Pálmi Freyr Sigurgeirsson 15 en Darrin Govens gerði 27 stig fyrir Þór og Mike Hariston 20, ásamt því að taka 21 frákast.

Grindvíkingar sluppu svo sannarlega fyrir horn gegn ÍR í Seljaskóla. Þeir voru undir allan tímann og komust yfir í fyrsta sinn 50 sekúndum fyrir leikslok. Liðin voru yfir til skiptis á lokamínútunni en Giordan Watson skoraði sigurkörfu Grindaíkur á lokasekúndunni, 90:89. J.Nathan Bullock fór hamförum í liði Grindavíkur en hann skoraði 51  stig og tók 14 fráköst, og skoraði fyrstu 17 stig liðsins í leiknum.

Stjarnan sigraði Hauka naumlega en lokatölur urðu 81:74 í Garðabæ eftir að Haukar voru yfir nær allan tímann og nokkuð fram í fjórða leikhluta. Renato Lindmets skoraði 25 stig fyrir Stjörnuna og Justin Shouse 21 en Hayward Fain gerði 19 stig fyrir Hauka og Örn Sigurðarson 18.

Leikur Njarðvíkur og KR var hnífjafn lengi og staðan var 73:74 eftir þriðja leikhluta. KR gerði út um hann með fjórtán stigum í röð í upphafi þess fjórða og vann að likum, 98:88. Sencanski skoraði 21 stig fyrir KR og þeir Joshua Brown og Robert Ferguson 17 hvor en Travis Holmes skoraði 27 stig fyrir Njarðvík og Cameron Echols 23.

Fjölnir vann Tindastól örugglega, 106:87, í Grafarvogi. Fjölnismenn komust í 13:0 og 18:2 og héldu öruggri forystu allan leiktímann. Nathan Walkup skoraði 35 stig fyrir Fjölni og Calvin O'Neal 24 en Þröstur Jóhannsson gerði 23 stig fyrir Tindastól.

Keflavík var ekki í vandræðum með botnlið Vals og sigraði örugglega, 98:76. Nýi maðurinn Kristoffer Douse skoraði 19 stig fyrir Keflavík og Ragnar Gylfason 16 stig fyrir Val.

Staðan í leikjunum:

Stjarnan - Haukar  18:21 - 41:42 - 55:61 - 81:74. LEIK LOKIÐ
Njarðvík - KR          26:25 - 44:50 - 73:74 - 88:98. - LEIK LOKIÐ
Snæfell - Þór Þ.      15:20 - 39:37 - 58:52 - 76:76 - framlengt - 93:86. LEIK LOKIÐ.
ÍR - Grindavík         37:25 - 54:41 - 76:64 - 89:90. LEIK LOKIÐ
Keflavík - Valur      30:23 - 59:44 - 81:58 - 98:76. LEIK LOKIÐ
Fjölnir - Tindastóll  36:21 - 55:37 - 76:64 - 106:87. LEIK LOKIÐ

20.48 - Framlengt í Stykkishólmi en Marquis Hall jafnaði fyrir Snæfell gegn Þór Þ., 76:76, á lokasekúndunni!

20.40 - Grindvíkingar hafa heldur betur tekið við sér og ÍR er nú aðeins með eins stigs forystu, 78:77, þegar 3 mínútur eru eftir. Stjarnan er að sigla framúr Haukum og KR er komið með örugga forystu í Njarðvík eftir að hafa gert fyrstu 14 stigin í fjórða leikhluta.

20.26 - Grindvíkingar söxuðu á forskot ÍR, niður í sex stig, undir lok þriðja leikhluta en ÍR svaraði með síðustu fjórum stigum leikhlutans og staðan að honum loknum er 76:64 fyrir Breiðhyltinga. Þeir eru enn líklegir til að innbyrða óvæntan sigur. J'Nathan  Bullock er sem fyrr allt í öllu hjá Grindavík og hefur skorað 41 stig og tekið 10 fráköst en næsti maður er með 8 stig! Nemanja Sovic er með 18 stig fyrir ÍR.

20.24 - Snæfell er yfir, 58:52, gegn Þór Þ. eftir þriðja leikhluta. Marquis Hall og Jón Ólafur Jónsson eru með 13 stig hvor fyrir Snæfell og Darrin Govens 16 fyrir Þór.

20.20 - Haukar gefa ekkert eftir og eru yfir eftir þrjá leikhluta gegn Stjörnunni í Garðabæ, 61:55. Hayward Fain og Örn Sigurðarson eru með 13 stig hvor fyrir Hauka en Renato Lindmets 17 og Justin Shouse 15 fyrir Stjörnuna.

20.15 - Snæfell hefur náð góðu forskoti gegn Þór Þ., þegar þriðji leikhluti er hálfnaður, 52:41. Marquis Hall og Hafþór Ingi Gunnarsson eru með 11 stig hvor fyrir Snæfell.

20.13 - Haukar eru enn yfir í Garðabæ þegar þriðji leikhluti er rúmlega hálfnaður, 51:49.

20.00 - KR-ingar áttu góðan endasprett í Njarðvík og eru yfir í hálfleik, 50:44. Robert Ferguson hefur skorað 9 stig fyrir KR og þrír leikmenn eru með 8 en Travis Holmes hefur skorað 17 stig fyrir Njarðvík.

20.00 - ÍR er með gott  forskot í hálfleik gegn toppliði Grindavíkur, 54:41, og hefur haldið að mestu forskotinu sem liðið náði á fyrstu átta mínútum leiksins. Nemanja Sovic er með 18 stig fyrir ÍR og Robert Jarvis 11. J'Nathan Bullock er með 25 stig og 8 fráköst fyrir Grindavík.

19.58 - Keflavík er yfir í hálfleik gegn Val, 59:44. Charlie Parker er með 13 stig fyrir Keflavík og Magnús Þór Gunnarsson 12 en Ragnar Gylfason hefur skorað 12 stig fyrir Val.

19.57 - Fjölnismenn halda sínu striki gegn Tindastóli og eru yfir í hálfleik, 55:37. Nathan Walkup er með 14 stig fyrir Fjölni og Arnþór Freyr Guðmundsson 12. Svavar Birgisson og Þröstur Jóhannsson eru með 8 stig hvor fyrir Tindastól.

19.56 - Snæfell er yfir í hálfleik gegn Þór frá Þorlákshöfn, 39:37. Hafþór Ingi Gunnarsson er með 11 stig fyrir Snæfell og Jón Ólafur Jónsson 9. Guðmundur Jónsson og Mike Hairston eru með 10  stig hvor fyrir Þór.

19.54 - Haukar eru nokkuð óvænt yfir í hálfleik gegn Stjörnunni í Garðabæ, 42:41. Chris Smith og Haukur Óskarsson eru með 9 stig hvor fyrir Hauka en Renato Lindmets er með 13 stig fyrir Stjörnuna og Keith Cothran 12.

19.46 - Valsmenn stóðu í Keflvíkingum fyrstu 7-8 mínúturnar en nú virðist spennan vera úr sögunni þar. Keflavík er yfir, 51:35, þegar tæpar þrjár mínútur eru til hálfeliks. Charlie Parker er með 13 stig fyrir Keflavík og Magnús Þór Gunnarsson 12.

19.43 - Snæfell hefur heldur betur snúið blaðinu við gegn Þór frá Þorlákshöfn og er komið í 29:22 um miðjan annan leikhluta. Þór komst í 12:2 og var yfir, 20:15, eftir fyrsta leikhluta. Hafþór Ingi Gunnarsson hefur skorað 11 stig fyrir Snæfell.

19.40 - Haukar hafa  byrjað vel í Garðabænum. Þeir voru yfir, 21:18, eftir fyrsta leikhluta og eru komnir í 39:34 þegar hálf fjórða mínúta er til hálfleiks.

19.36 - Jafnasti leikurinn til þessa er í Njarðvík þar sem heimamenn eru yfir, 26:25, gegn KR eftir fyrsta leikhluta. Travis Holmes er með 11 stig fyrir Njarðvík.

19.35 - Nemanja Sovic er með 15 stig fyrir ÍR í fyrsta leikhluta gegn Grindavík en J'Nathan Bullock 19 stig fyrir Grindavík. Staðan er 37:25 fyrir ÍR.

19.34 - Nathan Walkup hefur skorað 12 stig fyrir Fjölni sem er yfir gegn Tindastóli eftir fyrsta leikhluta, 36:21.

19.30 - J'Nathan Bullock skoraði fyrstu 17 stig Grindvíkinga gegn ÍR. Hann er eini maðurinn með lífsmarki hjá toppliðinu því staðan eftir 8 mínútur er 34:20.

19.27 - ÍR fer vel af stað gegn toppliði Grindavíkur og er með fimmtán stiga forystu eftir rúmar sex mínútur, 27:12. Nemanja Sovic er kominn með 11 stig.

19.23 - Snæfell hefur aðeins skorað 2 stig á fyrstu fjórum mínútunum gegn Þór frá Þorlákshöfn á heimavelli og staðan er 2:12.

19.20 - Athyglisverðasta byrjun kvöldsins er hjá Fjölni sem skoraði fyrstu 13 stigin í leiknum við Tindastól í Grafarvogi. Nathan Walkup fimm þeirra.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is