Léku ringlaða og ráðalausa Skagfirðinga grátt

Daði Berg Grétarsson úr Fjölni stöðvar Maurice Miller úr Tindastóli í leiknum í gærkvöld. stækka

Daði Berg Grétarsson úr Fjölni stöðvar Maurice Miller úr Tindastóli í leiknum í gærkvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Morgunblaðið Kristinn Friðriksson sport@mbl.is

Í hráslaga gærkveldsins sóttu Tindastólsmenn Fjölni heim. Mikilvægi leiksins var ótvírætt; Fjölnismenn, sem höfðu ekki sýnt sömu töfra á nýju ári og því síðasta, áttu á hættu að heltast úr lestinni. Tindastólsmenn, með nýjan leikmann innanborðs, Igor Tratnik, hafa hinsvegar verið á hvínandi siglingu og kannski litið á Fjölnisliðið sem auðvelda bráð. Það var Fjölnisliðið hinsvegar ekki og vann sérlega sannfærandi sigur á steingeldum gestunum, 106:87.

Eftir 2:30 mínútur var staðan orðin 13:0 fyrir heimamenn og leikhlé tekið. Þessi stutta samverustund Tindastólsmanna hafði hinsvegar engin áhrif á gang leiksins; heimamenn héldu uppteknum hætti á meðan ringlaðir Skagfirðingar hringsnerust um völlinn ráðalausir, án þess að vita í þennan heim né annan. Sóknarleikur einkenndist af slæmu skotvali, hiki leikmanna og einföldu getuleysi. Ég vil ekki taka neitt af Fjölnismönnum, en þeirra varnarleikur hefur oft verið betri. Málið var samt sem áður að þeir þurftu ekki að spila frábæra vörn gegn því sóknarframtaki sem Tindastóll reiddi fram í gærkvöldi.

Sjá nánar grein Kristins um leikinn í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is