Loksins sigur hjá Sundsvall
Ríkjandi meistarar Sundsvall hafa ekki átt sjö dagana sæla síðan Pavel Ermolinskij meiddist en án hans höfðu þeir ekki unnið í síðustu fjórum leikjum í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Þrátt fyrir að Pavel væri enn á meiðslalistanum hristu leikmenn Sundsvall af sér slenið, með Jakob Örn Sigurðarson fremstan í flokki, og unnu LF Basket 97:87 í kvöld.
Jakob var stigahæstur hjá Sundsvall með 27 stig, tók 2 fráköst og gaf 2 stoðsendingar en samherji hans og landi, Hlynur Bæringsson, var með 10 stig og 8 fráköst. Það er væntanlega þungu fargi létt af Peter Öqvist þjálfara liðsins sem einnig þjálfar íslenska karlalandsliðið í körfubolta. Sundsvall skaust með sigrinum upp fyrir LF Basket í 4. - 5. sæti deildarinnar með 30 stig en fjögur stig eru enn í efsta sætið.
Allir Íslendingarnir í sænska körfuboltanum spiluðu í kvöld og allir léku þeir á heimavelli. Logi Gunnarsson skoraði 7 stig og tók 3 fráköst fyrir Solna sem vann Örebro 83:74. Brynjar Þór Björnsson náði sér ekki á strik fyrir Jämtland sem tapaði illa fyrir Södertälje, 101:75. Brynjar var með 8 stig og 1 frákast.
Það fór eins fyrir liði Helga Más Magnússonar og Brynjari en 08 Stockholm tapaði fyrir Norrköping, 85:80. Helgi Már var með 11 stig og 7 fráköst á þeim 25 mínútum sem hann spilaði.
Staðan í deildinni er ótrúlega jöfn og allir að vinna alla en stöðuna má nálgast með því að smella hér.






