Óbreytt lið hjá ÍR í næstu leikjum
Gunnar Sverrisson, þjálfari körfuknattleiksliðs ÍR, segist ekki reikna með því að tefla fram nýjum erlendum leikmanni í næstu leikjum. ÍR lét James Bartolotta fara á dögunum en liðið er í harðri baráttu um að komast í úrslitakeppnina.
„Ég verð með óbreyttan leikmannahóp í næstu leikjum enda er ekkert ákveðið hvað við gerum í framhaldinu,“ sagði Gunnar þegar Morgunblaðið innti hann eftir því hvort hann væri búinn að finna eftirmann Bartolotta sem hafði glímt við meiðsli í baki.
„Hann hefur verið bakveikur frekar lengi og hefur ekki getað beitt sér að fullu. Því miður komst hann ekki á sama flug í leikjum og á æfingum og á síðasta tímabili en mér þykir ótrúlega leiðinlegt að hafa þurft að láta hann fara því við erum orðnir góðir vinir,“ sagði Gunnar. kris@mbl.is






