Rose tryggði Chicago sigur í New York
Derrick Rose sækir að körfu New York þar sem Amar'e Stoudemire er til varnar. Þeir skoruðu samtals 66 stig í nótt. Reuters
Stórleikur hjá Derrick Rose gerði útslagið fyrir Chicago Bulls, topplið Austurdeildar NBA-deildarinnar í körfuknattleik, þegar það lagði New York Knicks á útivelli, 105:102, í Madison Square Garden í nótt.
Rose skoraði 32 stig, þar af 15 í fjórða leikhluta, og átti auk þess 13 stoðsendingar fyrir lið sitt. Amar'e Stoudamire var líka geysiöflugur í liði New York en hann skoraði 34 stig og tók 11 fráköst. Bæði hann og Carmelo Anthony áttu 3ja stiga tilraunir sem geiguðu á lokasekúndum leiksins.
Denver Nuggets vann góðan útisigur á LA Clippers, 112:91. Danilo Gallinari skoraði 21 stig fyrir Denver og Blake Griffin 18 fyrir Clippers.
Úrslitin í nótt:
Atlanta - Memphis 77:96
New York - Chicago 102:105
San Antonio - New Orleans 93:81
Sacramento - Portland 95:92
LA Clippers - Denver 91:112
Golden State - Utah 119:101






