Pétur: Ætluðum að vinna en grófum holu

Craig Schoen leikstjórnandi KFÍ. stækka

Craig Schoen leikstjórnandi KFÍ. mbl.is/Ernir Eyjólfsson

„Við ætluðum að vinna,“  sagði Pétur Sigurðsson þjálfari fyrstudeildarliðs KFÍ mjög svo ákveðið eftir að hafa tapað 90:77 fyrir Keflavík í undanúrslitum bikarkeppni karla í Keflavík í kvöld.

„Við komum í þennan leik til að vinna, eins og við gerum í hverjum einasta leik, enda sáum við mikla möguleika á sigri en við grófum okkur holu í öðrum leikhluta og það er erfitt að koma til baka gegn góðu liði eins og Keflavík. Við gerðum þetta aftur að leik í fjórða leikhluta en það var ekki nóg og því fór sem fór.

Við settum okkur ekki bara markmið fyrir þennan vetur, heldur til nokkurra ára og stefnum á að vinna sæti í úrvalsdeildinni. Ég er ekki með reynda menn, nokkra unga og efnilega stráka í bland við öfluga erlenda leikmenn, svo að við duttum jafnvel aðeins niður í byrjun út af stressi en það er svo sem engin afsökun því Keflavík spilaði betur en við í öðrum leikhluta.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is