Sigrar hjá Íslendingaliðunum á Spáni
Íslendingarnir í spænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik, Jón Arnór Stefánsson og Haukur Helgi Pálsson, fögnuðu báðir sigri um helgina.
Haukur og samherjar í Assignia Manresa unnu stórsigur á Baloncesto 80:59 á heimavelli í gærkvöldi. Haukur skoraði tvö stig og tók eitt frákast á þeim rúmlega átta mínútum sem hann fékk að spreyta sig.
Jón Arnór var einn besti maður CAI Zaragoza sem lagði Valencia að velli 71:63 einnig á heimavelli. Jón skoraði 12 stig, tók tvö fráköst og gaf tvær stoðsendingar og varði eitt skot á þeim tæplega 30 mínútum sem hann lék. Jón nýtti skot sín velen hann hitti úr báðum þriggja stiga skotum sínum, einu af þremur innan teigs og fjórum af sex vítaskotum.
CAI Zaragoza er í 7. sæti með tíu sigra í nítján leikjum en Manresa er í 11. sæti með níu sigra í nítján leikjum.






