Sigurður: Unnum svo ég röfla ekkert
„Við unnum og það skiptir bara máli en leikur okkar var lélegur, við bjuggumst svo sem við að vinna svo við spiluðum þannig,“ sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfari Keflvíkinga, sem slógu fyrstudeildarlið KFÍ út úr bikarnum með 90:77-sigri í Keflavík í kvöld.
„Við vorum að spila við ágætislið þótt það sé í 1. deild og ef við spilum ekki á fullu erum við ekkert sérstakt lið. Við byrjuðum rólega en bættum aðeins í í öðrum leikhluta og það dugði til að ná forystu, sem við héldum út leikinn. Við spiluðum bara eins mikið og við þurftum, ekkert meira en það, og þetta var ekkert sérstakt en fyrst við erum komnir í úrslitin röfla ég ekkert yfir því.“
Sigurður tók við liðinu í vetur og voru margir sterkir leikmenn farnir eða hættir. „Það fór eiginlega allt liðið í fyrra og strákarnir sem eru að spila núna hafa lítið fengið að spreyta sig en þeir leggja mikið á sig og það er skemmtilegt en við erum ósáttir við að það er svolítið langt síðan þessi bikar kom til Keflavíkur.“






