Er mjög sáttur við sitt hlutverk

Jón Arnór Stefánsson, stækka

Jón Arnór Stefánsson, mbl.is

Jón Arnór Stefánsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, gerir það gott í atvinnumennskunni nú sem endranær. Jón skipti um vinnustað síðastliðið sumar og færði sig um set á Spáni, frá Granada til Zaragoza, eftir að samningur hans rann út hjá Granada.

Jón er í stóru hlutverki hjá Zaragoza sem á í mikilli baráttu um að ná einu af átta efstu sætunum sem gefa þátttökurétt í úrslitakeppninni um spænska meistaratitilinn en deildin þykir almennt vera sú sterkasta í Evrópu.

„Ég kann vel við mig hér í Zaragoza og er mjög ánægður. Þetta er gott félag sem stendur við sitt, eyðir ekki um efni fram og hér er fagmannlega að öllu staðið. Borgin er stór og er mikil körfuboltaborg. Fjöldinn sem styður við bakið á liðinu er gríðarlegur og stemningin fyrir liðinu er eins góð og ég hef nokkurn tíma upplifað. Þetta félag hefur allar forsendur til að gera góða hluti í framtíðinni. Aðstaðan er ofsalega góð og höllin er með þeim flottari á Spáni en hún tekur sjálfsagt í kringum 10-12 þúsund manns. Oft á tíðum er fullt hús hjá okkur og við erum sterkir á heimavelli,“ sagði Jón Arnór þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hans á laugardaginn.

Sjá nánar viðtal við Jón Arnór í átta síðna íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is