Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 6.2.2012
| 23:20
Helena í sjónvarpsviðtali í Slóvakíu (myndskeið)
Helena Sverrisdóttir, landsliðskona í körfuknattleik, er farin að láta til sín taka hjá sterku liði Good Angels Kosice í Slóvakíu en hún er á sínu fyrsta ári í atvinnumennsku eftir frábæra frammistöðu í háskólaboltanum í Bandaríkjunum.
Vefsíðan Leikbrot.is vakti á dögunum athygli á sjónvarpsviðtali sem tekið var við Helenu í Slóvakíu. Helena tjáði sig á ensku við sjónvarpsmanninn eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði en þar eru einnig sýnd valin tilþrif hjá Helenu úr leikjum með Góðu englunum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






