Eigum helling inni
Sauðkrækingar verða örugglega fjölmennir í Laugardalshöllinni laugardaginn 18. febrúar þegar Tindastóll spilar til úrslita í bikarkeppninni í körfuknattleik í fyrsta skipti. Tindastóll lagði KR að velli í undanúrslitunum í fyrrakvöld á meðan Keflvíkingar sigruðu Ísfirðinga.
„Þessi leikur þróaðist eins og okkur hentar best. Þegar staðan er jöfn og lítið eftir, líður okkur vel. Við vitum að þá getum við skellt í lás í vörninni og sett vítaskotin niður, og þannig var þetta gegn KR. Að mínu mati erum við ekki ennþá farnir að spila eins og við getum best og eigum helling inni ennþá,“ sagði Þröstur Leó Jóhannsson, Keflvíkingurinn í liði Tindastóls, sem nú á fyrir höndum bikarúrslitaleik gegn sínum gömlu félögum í Laugardalshöllinni.
Bárður Eyþórsson tók við þjálfun Tindastóls í nóvember, þegar liðið hafði tapað fimm af fyrstu sex leikjum sínum í úrvalsdeildinni. Undir hans stjórn hafa Sauðkrækingar unnið átta af ellefu leikjum sínum í deild og bikar, hafa rétt sig vel við í deildinni, þar sem þeir eru eitt fjögurra liða sem eru jöfn í sjöunda til tíunda sæti, og eru komnir í bikarúrslitin.
Þröstur sagði að mikið hefði breyst þegar Bárður tók við liðinu.
„Já, það er í raun allt annað hugarfar og mórall. Við spilum betri varnarleik, en hann hefur fyrst og fremst komið með meiri liðsmiðaðar áherslur heldur en einstaklingsmiðaðar. Nú er meiri taktur í liðinu í heild. Við vorum með fínt lið áður en núna er heildin miklu betri.“
Sjá nánar viðtal við Þröst í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.






