Jakob fór mikinn með Sundsvall

Jakob Örn Sigurðarson. stækka

Jakob Örn Sigurðarson. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Jakob Örn Sigurðarson fór mikinn með sænska meistaraliðinu Sundsvall þegar liðið hafði betur gegn botnliði Örebro. 92:80, í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld.

Jakob skoraði 30 stig í leiknum og átti 3 stoðsendingar. Hlynur Bæringsson stóð einnig fyrir sínu en hann skoraði 12 stig og tók 7 fráköst en Pavel Ermolinkij lék ekk með liðinu vegna meiðsla.

Logi Gunnarsson skoraði 8 stig fyrir Solna í sigri liðsins á Uppsala, 88:74.

Brynjar Þór Björnsson og félagar hans í Jämtland töpuðu á heimavelli fyrir Norrköping, 81:83, þar sem gestirnir skoruðu sigurkörfuna tveimur sekúndum fyrir leikslok.

Helgi Már Magnússon skoraði 4 stig fyrir Stockholm 08 þegar liðið tapaði á heimavelli fyrir LF Basket, 85:79.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is