Billups ekki meira með í vetur

Chauncey Billups í leik með Denver Nuggets. stækka

Chauncey Billups í leik með Denver Nuggets. Reuters

Bandaríska körfuknattleiksliðið Los Angeles Clippers varð fyrir því áfalli að bakvörðurinn öflugi Chauncey Billups leikur ekki meira með því á þessu keppnistímabili.

Billups slasaðist í leik Clippers og Orlando Magic í fyrrinótt og nú hefur verið staðfest að hann er með slitna hásin á vinstri fæti.

Billups, sem er 35 ára gamall, kom til liðs við Clippers í desember og hefur átt drjúgan þátt í góðri byrjun liðsins sem hefur unnið 15 af fyrstu 22 leikjum sínum á tímabilinu. Hann hefur fimm sinnum verið valinn í úrvalslið fyrir Stjörnuleik NBA.

Þar með er ljóst að Billups spilar ekki á Ólympíuleikunum í sumar en hann er í 20 manna landsliðshópi Bandaríkjanna sem hefur verið valinn fyrir leikana.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is