Kobe Bryant fór upp fyrir Shaq

Kobe Bryant. stækka

Kobe Bryant. Reuters

Stórstjarnan Kobe Bryant er kominn í fimmta sæti yfir stigahæstu leikmenn NBA-deildarinnar frá upphafi. Bryant fór upp fyrir sinn gamla samherja Shaquille O'Neal á listanum þegar hann skoraði 28 stig fyrir LA Lakers í tapleik á móti Philadelphia 76ers í fyrrinótt. Bryant vantaði 23 stig til að komast upp fyrir Shaq og náði því strax í fyrri hálfleik. Bryant hefur líklega ekki leiðst það sérstaklega þar sem grunnt var á því góða á milli þeirra á köflum hjá Lakers.

Kobe Bryant hefur skorað 26.601 stig fyrir Lakers en hann er á sínu fimmtánda tímabili í deildinni og gæti bætt duglega í safnið en hann er á þrítugasta og fjórða aldursári. Næstur fyrir ofan Bryant er annar fyrrum leikmaður Lakers, Wilt Chamberlain sem skoraði 31.419 stig á ferlinum.

Gamli höfðinginn Kaarem Abdul-Jabbar er efstur á þessum lista og 38.387 stig. Enn einn fyrrverandi leikmaður Lakers, Karl Malone, hjó nokkuð nærri Jabbar og skilaði 36.928 stigum í hús. Þriðji á listanum er goðsögnin Michael Jordan sem skoraði 32.292 stig. Af öðrum leikmönnum sem enn eru að spiila í NBA-deildinni þá þarf að fara niður í 19. sæti listans en þar er að finna Kevin Garnett hjá Boston Celtics. Hann er á sínu sextánda tímabili og er kominn með 23.637 stig. kris@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is