Topplið Keflavíkur sigraði KR

Jaleesa Butler skoraði 21 stig fyrir Keflavík á móti KR og tók 22 fráköst. stækka

Jaleesa Butler skoraði 21 stig fyrir Keflavík á móti KR og tók 22 fráköst. mbl.is/Árni Sæberg

Keflavík jók forystu sína á toppi Iceland Express-deildar kvenna í körfuknattleik í kvöld með sigri á KR 70:56. Njarðvík sem er í 2. sæti tapaði fyrr í kvöld fyrir Val á útivelli 100:81.

Jaleesa Butler skoraði 21 stig fyrir Keflavík og tók 22 fráköst. Pálína Gunnlaugsdóttir skoraði 18 stig fyrir Keflavík. Margrét Kara Sturludóttir fór fyrir KR-liðinu en hún skoraði 18 stig og tók 15 fráköst. 

Haukar unnu Hamar í hörkuleik á Ásvöllum  72:66. Hope Elam var stigahæst hjá Haukum með 17 stig. Hún tók 9 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Katherine Graham gerði 22 stig fyrir Hamar en tók auk þess 10 fráköst og gaf 11 stoðsendingar.

Snæfell sigraði Fjölni 90:88 eftir framlengingu og dramatík. Katina Mandylaris fékk tækifæri til að jafna metin fyrir Fjölni og knýja fram aðra framlengingu en hún fékk tvö vítaskot þegar leiktíminn í framlengingunni var liðin.  Henni brást hins vegar bogalistin. Brittney Jones skoraði 38 stig fyrir Fjölni en Kieraah Marlow skoraði 32 stig fyrir Snæfell.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is