Valur skoraði 100 stig gegn Njarðvík
Valur og Njarðvík áttust við í Iceland Express-deild kvenna í körfuknattleik á Hlíðarenda klukkan 20:00. Valur sigraði 100:81 en Njarðvík var yfir 51:44 að loknum fyrri hálfleik. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.
40. mín: Leik lokið. Valur sigraði 100:79. Leikurinn var jafn og spennandi en Valur seig fram úr á lokamínútunum.
36. mín: Staðan er 85:78 fyrir Val. Baker-Brice reynir nú upp á sitt einsdæmi að skora í hverri einustu sókn hjá Njarðvík og þar virðist vera farin að grípa um sig örvænting.
34. mín: Staðan er 78:72 fyrir Val. Vænleg staða fyrir Val þegar þrjár og hálf mínúta er liðin af síðasta leikhlutanum. Simpson og Baker-Brice hafa báðar verið utan vallar vegna villuvandræða en koma nú væntanlega báðar inn á.
30. mín: Staðan er 69:69 að loknum þriðja leikhluta. Valur komst yfir 69:67 í fyrsta skipti síðan seint í öðrum leikhluta. Síðasti leikhlutinn gæti orðið mjög forvitnilegur en Valsliðið á góða möguleika á því að hirða stigin. Lacey Simpson hjá Val og Shanae Baker-Brice hjá Njarðvík eru báðar komnar með fjórar villur.
25. mín: Staðan er 60:60. Valur hefur byrjað síðari hálfleikinn vel og Guðbjörg Sverrisdóttir tók góða rispu og skoraði 6 stig á skömmum tíma. Shanae Baker-Brice hefur eiginlega haldið Njarðvík inni í leiknum í síðari hálfleik með góðum tilþrifum. María Ben Erlingsdóttir er að hita upp við varamannabekkinn hjá Val en hefur ekki komið aftur inn á.
20. mín: Staðan er 51:44 fyrir Njarðvík að loknum fyrri hálfleik. Stórar tölur enda hefur leikurinn verið hraður. Leikur Vals hrundi nánast á lokamínútum fyrri hálfleiks þegar Njarðvík beitti pressuvörn og Valskonur sjálfsagt fegnar að fá leikhléið til að leggja á ráðin. María Ben Erlingsdóttir er stigahæst hjá Val með 11 stig en hún var utan vallar frá því á 13. mínútu vegna ökklameiðsla. Lele Hardy er stigahæst hjá Njarðvík með 13 stig.
17. mín: Staðan er 40:38 fyrir Val. Leikurinn er mjög jafn eins og tölurnar gefa til kynna og þjálfarar liðanna, Ágúst Björgvinsson og Sverrir Þór Sverrisson, eru afskaplega líflegir á hliðarlínunni.
13. mín: Staðan er 28:29 fyrir Njarðvík. María Ben Erlingsdóttir var studd af leikvelli rétt í þessu og virðist hafa meiðst í hné eða á ökkla. Það yrði áfall fyrir Val ef hún gæti ekki tekið frekari þátt í leiknum en hugað er að henni utan vallar. María byrjaði leikinn með látum og skoraði 11 stig og tók 4 fráköst í fyrsta leikhluta.
10. mín: Staðan er 24:23 fyrir Val að loknum fyrsta leikhluta. Njarðvík byrjaði betur en Valsliðið náði góðum kafla og náði mest fjögurra stiga forskoti. Miðað við fyrsta leikhluta þá gæti þessi leikur orðið spennandi.
5. mín: Staðan er 13:9 fyrir Njarðvík. Leikurinn er jafn til að byrja með en lítið að marka spilamennskuna enn sem komið er.






