Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 9.2.2012
| 23:29
| Uppfært
10.2.2012
9:30
Bárður: Góður karakter í liðinu
Bárður Eyþórsson, þjálfari Tindastóls, var ekki óhress með sína menn þrátt fyrir ósigur gegn Grindvíkingum á heimavelli, 96:105, í úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.
„Þetta var bara erfiður leikur. Við vorum lengst af ekki nægilega góðir í vörninni, en þeir eru bara einfaldlega góðir. Hinsvegar gáfumst við aldrei upp og það er góður karakter í liðinu að koma til baka og vinna sig aftur inn í leikinn eftir að hafa verið svona mikið undir, og ég er ekkert svo ósáttur,“ sagði Bárður við mbl.is.
Nánar er fjallað um leikinn í íþróttablaði Morgunblaðsins í fyrramálið.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






