Grindavík með fjórtánda sigurinn
Grindvíkingar unnu í kvöld sinn fjórtánda sigur þegar fjórir leikir voru háðir í 15. umferð úrvalsdeildar karla í körfuknattleik, Iceland-Express deildinni. Þeir gerðu góða ferð til Sauðárkróks og unnu þar Tindastól, 105:96, eftir að hafa haft örugga forystu allan leikinn.
Minnsti munur var þegar tæp mínúta var eftir en þá minnkaði Tindastóll muninn í átta stig. Giordan Watson átti stórleik og skoraði 40 stig fyrir Grindavík, þar af 27 í fyrri hálfleik. J'Nathan Bullock skoraði 22 stig og Sigurður Þorsteinsson 15. Hjá Tindastóli var Curtis Allen með 23 stig, Maurice Miller 17 og Helgi Rafn Viggósson var með 16 stig og 10 fráköst.
Snæfell var ekki í vandræðum með ÍR í Stykkishólmi og vann þar, 97:74, eftir 55:37 í hálfleik. Quincy Hankins-Cole gerði 19 stig fyrir Snæfell og tók 16 fráköst, Jón Ólafur Jónsson skoraði 18 og Marquis Hall 18. Hjalti Friðriksson skoraði 18 stig fyrir ÍR.
Þór vann Njarðvík sannfærandi í Þorlákshöfn, 84:66, eftir 38:26 í hálfleik. Blagoj Janev skoraði 23 stig fyrir Þór og Darrin Govens 22 en Travis Holmes gerði 16 stig fyrir Njarðvík.
Fjölnir vann Val, 83:73, í jafnasta leik kvöldsins á Hlíðarenda en Fjölnir var yfir í hálfleik, 46:37. Um tíu stig skildu síðan liðin að allan seinni hálfleik og Valur er því enn án stiga. Arnþór Freyr Guðmundsson skoraði 27 stig fyrir Fjölni og Calvin O'Neal 21 en Alexander Dungal skoraði 18 stig fyrir Val og Hlynur Logi Víkingsson skoraði 17 og tók 15 fráköst.
Eftir leikina er Grindavík með 28 stig, Stjarnan 20, Keflavík 20, KR 18, Snæfell 18, Þór Þ. 18, Fjölnir 14, ÍR 12, Tindastóll 12, Njarðvík 12, Haukar 4 og Valur 0.
Annað kvöld mætast KR - Stjarnan og Haukar - Keflavík.
Staðan í leikjunum:
Þór Þ. - Njarðvík 14:16 - 38:26 - 65:45 - 84:66. LEIK LOKIÐ
Tindastóll - Grindavík 16:28 - 40:56 - 67:89 - 96:105. LEIK LOKIÐ
Snæfell - ÍR 24:15 - 55:37 - 85:57 - 97:74. LEIK LOKIÐ
Valur - Fjölnir 24:22 - 37:46 - 53:65 - 73:83. LEIK LOKIÐ
Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.
20.30 - Grindavík er með örugga forystu á Sauðárkróki eftir þriðja leikhluta, 89:67, og stefna í enn einn sigurinn. Giordan Watson hefur haft hægt um sig í seinni hálfleik en er þó kominn með 33 stig alls. Curtis Allen er með 19 stig fyrir Tindastól.
20.24 - Fjölnir er yfir gegn Val á Hlíðarenda eftir þriðja leikhluta, 65:53. Ekki virðast Valsmenn ætla að ná fyrstu stigunum í kvöld. Arnþór Freyr Guðmundsson er með 20 stig fyrir Fjölni og Alexander Dungal 16 fyrir Val.
20.23 - Þór er með 20 stiga forskot gegn Njarðvík eftir þriðja leikhluta, 65:45, í Þorlákshöfn. Janev er með 23 stig fyrir Þór og Darrin Govens 22 en Travis Holmes hefur skorað 16 fyrir Njarðvík.
20.21 - Snæfell er yfir, 85:57, eftir þriðja leikhluta gegn ÍR og allt útlit fyrir stórsigur í Hólminum. Jón Ólafur Jónsson og Marquis Hall eru með 18 stig hvor fyrir Snæfell og Robert Jarvis er með 13 fyrir ÍR.
20.15 - Viðeign Vals og Fjölnis er jafnasti leikur kvöldsins en þar voru þó Fjölnismenn að ná ellefu stiga forystu þegar hálf fjórða mínúta er eftir af þriðja leikhluta, 60:49. Arnþór Freyr Guðmundsson er með 17 stig fyrir Fjölni og Alexander Dungal 16 fyrir Val.
19.58 - Flautað til hálfleiks á Sauðárkróki og þar hefur Tindastóll lítið náð að saxa á forskot Grindavíkinga. Staðan er 56:40, gestunum úr Grindavík í hag. Þar hefur Giordan Watson farið á kostum og er með heil 27 stig í fyrri hálfleiknum. Curtis Allen hefur skorað mest fyrir Tindastól, 8 stig.
19.54 - Fjölnir hefur náð undirtökunum gegn Val á Hlíðarenda og er yfir í hálfleik, 46:37. Calvin O'Neal er með 15 stig fyrir Fjölni og Arnþór Guðmudnsson 11 en Alexander Dungal hefur skorað 12 fyrir Val saog Hlynur Logi Víkingsson 10.
19.53 - Þór er yfir gegn Njarðvík, 38:26, í hálfleik í Þorlákshöfn. Darrin Govens er með 18 stig fyrir Þór en Travis Holmes 8 fyrir Njarðvík.
19.52 - Snæfell er yfir í hálfleik, 55:37, gegn ÍR. Pálmi Freyr Sigurgeirsson og Jón Ólafur Jónsson eru með 13 stig hvor fyrir Snæfell en Robert Jarvis 12 fyrir ÍR.
19.42 - Snæfell virðist ætla að stinga ÍR-inga af en um miðjan annan leikhluta í Stykkishólmi er staðan 44:25, heimamönnum í hag. Sveinn Arnar Davíðsson hefur skorað 12 stig fyrir Snæfell og Robert Jarvis 12 stig fyrir ÍR.
19.37 - Grindavík er komin með góða forystu, 36:22, á Sauðárkróki þegar annar leikhluti er nýhafinn. Giordan Watson hefur skorað 17 stig fyrir Grindvíkinga.
19.31 - Valsmenn eru með forystu gegn Fjölni, 21:18, og Alexander Dungal hefur skorað 7 stig fyrir Hlíðarendaliðið sem reynir að ná í sín fyrstu stig í kvöld.
19.25 - Njarðvík byrjar vel í Þorlákshöfn og er yfir, 14:6. Elvar Már Friðriksson er með 5 stig fyrir Njarðvíkinga.
19.22 - Grindavík byrjar vel á Sauðárkróki og er yfir, 13:6. Sigurður Þorsteinsson er kominn með 6 stig.
19.15 - Leikirnir eru hafnir.






