Helgi: Við vorum bara heppnir
Björn Björnsson á Sauðárkróki sport@mbl.isHelgi Jónas Guðfinnsson, þjálfari körfuknattleiksliðs Grindvíkinga, var ekki fyllilega sáttur við sína menn eftir sigurinn á Tindastóli, 105:96, á Sauðárkróki í kvöld. Þetta var fjórtándi sigur þeirra í fimmtán umferðum.
„Við spiluðum vel í þremur leikhlutum, en ég er langt í frá sáttur við fjórða hlutann, en þar gerðum við ekkert af því sem lagt var upp með. Við vorum bara heppnir, við eigum ekki að gefa liðum séns eins og við gerðum í kvöld. Ef þeir hefðu til dæmis hitt úr öllum þriggja stiga skotunum í þessum leikhluta þá hefðum við sannanlega verið í vondum málum.
Vissulega var þetta harður leikur, en þetta var bara lína sem dómararnir lögðu og mér fannst við ekki græða neitt á því,“ sagði Helgi Jónas við mbl.is.
Nánar er fjallað um leikinn í íþróttablaði Morgunblaðsins í fyrramálið.






