Howard magnaður í sigri á Miami
Dwight Howard var í miklum ham í nótt þegar Orlando Magic lagði Miami Heat í uppgjöri Flórídaliðanna í NBA-deildinni í körfuknattleik, 102:89 á heimavelli sínum í Orlando.
Howard skoraði 25 stig og tók hvorki fleiri né færri en 24 fráköst. Hann var þó ekki stigahæstur hjá Orlando því Ryan Anderson skoraði 27 stig, þar af 24 í fyrri hálfleiknum.
Dwyane Wade skoraði 33 stig fyrir Miami en LeBron James varð að láta 17 duga en átti 10 stoðsendingar.
Franski bakvörðurinn Tony Parker skoraði 37 stig fyrir San Antonio Spurs sem vann góðan útisigur á Philadelphia 76ers, 100:90.
Úrslitin í nótt:
Toronto - Milwaukee 99:105
Philadelphia - San Antonio 90:100
Washington - New York 93:107
Orlando - Miami 102:89
Cleveland - LA Clippers 99:92
New Jersey - Detroit 92:99
Atlanta - Indiana 97:87
Memphis - Minnesota 85:80
New Orleans - Chicago 67:90
Denver - Dallas 95:105
Portland - Houston 96:103






