Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 9.2.2012
| 18:09
Kröfu Keflvíkinga hafnað
Ólöf Helga Pálsdóttir og samherjar í Njarðvík að öllu óbreyttu í undanúrslitum bikarkeppninnar. mbl.is/Golli
Aga- og úrskurðanefnd KKÍ hefur hafnað þeirri kröfu Keflvíkinga að leikur Njarðvíkur og Keflavíkur í 8-liða úrslitum Powerade-bikars kvenna í körfuknattleik verði leikin að nýju. Njarðvík vann leikinn og dróst á móti Haukum í undanúrslitum keppninnar.
Keflvíkingar kærðu framkvæmd leiksins. Fyrstu kæru þeirra var vísað frá vegna formgalla.
Greinagerð aga-og úrskurðanefndar er að finna á heimasíðu KKÍ.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






