Gasol bjargvættur í Boston
Spánverjinn Pau Gasol bjargaði sigri í hús fyrir LA Lakers í framlengdum leik gegn Boston Celtics, 88:87, í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt, þegar liðin mættust í Boston.
Á lokasekúndum framlengingarinnar fékk Boston tvö færi til að tryggja sér sigurinn. Fyrst skaut Paul Pierce, hitti ekki en Ray Allen náði boltanum og virtist ætla að skora flautukörfu. Gasol kom í veg fyrir það með því að verja skot hans og leiktíminn rann út.
Gasol var auk þess firnasterkur allan tímann en hann skoraði 25 stig og tók 14 fráköst. Kobe Bryant skoraði 27 stig þannig að þeir tveir sáu um stóran hluta af stigaskori liðsins. Andrew Bynum var líka drjúgur með 16 stig og 17 fráköst. Ray Allen skoraði 22 stig fyrir Boston.
„Maður verður bara að spila þar til flautan gellur og það reyni ég að gera. Ég hef áður upplifað það að frjósa á svona augnabliki og standa sjálfan mig að því að horfa á boltann og sjá einhvern gera út um leikinn. Ég er því ánægður með að ég hélt áfram alla leið í kvöld," sagði Gasol við fréttamenn í leikslok en það var hann sem jafnaði metin, 82:82, í lok venjulegs leiktíma.
Sacramento Kings vann nokkuð óvæntan sigur á toppliði Oklahoma City Thunder, 106:101. Tyreke Evans skoraði 23 stig fyrir Sacramento en Russell Westbrook gerði 33 stig fyrir Oklahoma og Kevin Durant 27.
Úrslitin í nótt:
Boston - LA Lakers 87:88 (Eftir framlengingu)
Denver - Golden State 101:109
Phoenix - Houston 89:96
Sacramento - Oklahoma City 106:101






