Íþróttir
| mbl
| 10.2.2012
| 23:54
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
Ingvar Þór Jónsson, fyrirliði Skautafélags Akureyrar, segir Akureyringa áður hafa verið upp við vegg en hafa unnið sig út úr því. SA Víkingar töpuðu í kvöld 7:2 fyrir Skautafélagi Reykjavíkur í Laugardalnum og eiga litla möguleika á því að komast í úrslitakeppnina.
„Við verðum að vinna síðustu þrjá leikina ef við ætlum okkur að vera með í úrslitum. Auðvitað vildum við vinna þennan til að létta aðeins pressunni en þeir voru sterkara liðið í kvöld,“ sagði Ingvar meðal annars við mbl.is að leiknum loknum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






