KR vann Stjörnuna í spennuleik - Haukar lögðu Keflvíkinga

Justin Shouse með boltann í viðureign KR og Stjörnunnar í kvöld. stækka

Justin Shouse með boltann í viðureign KR og Stjörnunnar í kvöld. mbl.is/Ómar Óskarsson

Íslandsmeistarar KR-inga lögðu Stjörnumenn, 89:87, í æsispennadi leik í Iceland Express-deild karla í körfuknattleik en liðin áttust við í Frostakjóli í kvöld. KR-ingar tryggðu sér sigur með því að skora úr tveimur vítaskotum á lokasekúndunni. Á Ásvöllum fögnuðu Haukar langþráðum sigri en þeir höfðu betur í framlengingu, 73:71.

KR - Stjarnan (20:20) (47:44) - (74:71) 89:87

Haukar - Keflavík (17:22) (30:41) - (52:53) (63:63) -  73:71

Bein lýsing frá leikjunum

Joshua Brown tryggði KR-ingurinn sigurinn með því að skora úr tveimur af þremur vítaskotum sem hann fékk þegar 1,6 sekúndur voru til leiksloka. Brown var stigahæstur KR-inga með 21 stig og Robert Ferguson kom næstur með 15 stig. Hjá Stjörnumönnum var Justin Shouse atkvæðamestur með 28 stig.

Haukar unnu sinn þriðja sigur með að leggja Keflvíkinga í æsispennandi leik en úrslitin réðust í framlengingu. Emil Barja var stigahæstur í liði Hauka með 23 stig og Hayward Fain skoraði 13. Hjá Keflvíkingum var Jarryd Cole atkvæðamstur með 22 stig og Magnús Gunnarsson skoraði 14.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is