Steinar Páll: Þetta var mjög gaman

Steinar Páll Veigarsson, fyrirliði Skautafélags Reykjavíkur, var afar sáttur við dagsverkið þegar mbl.is ræddi við hann í Laugardalnum í kvöld enda vann SR stórsigur á SA Víkingum 7:2 á Íslandsmótinu í íshokkí.

SR eru öruggir um sæti í úrslitakeppninni og nánast öruggir um að fá þar heimavallarréttinn. Akureyringar eiga það hins vegar á hættu að komast ekki í úrslitakeppnina í fyrsta skipti frá því Íslandsmótinu var ýtt úr vör.

Steinar gat ekki neitað því að SR-ingar væru í augnablikinu líklegir til að vinna Íslandsmeistaratitilinn en benti á að í úrslitakeppninni geti ýmislegt gerst og þá fari fleiri þættir að spila inn í en í venjulegum deildaleikjum.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is