Íþróttir
|
Körfubolti
| mbl
| 10.2.2012
| 20:41
Stórsigur hjá Sundsvall
Sænsku meistararnir í Sundsvall Dragons höfðu betur gegn Stockholm 08, 89:67, í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld en um Íslendingaslag var að ræða.
Hlynur Bæringsson var öflugur í liði Sundsvall en hann skoraði 19 stig og tók 5 fráköst. Jakob Sigurðarson skoraði 10 stig og átti 4 stoðsendingar en Pavel Ermolinkij var ekki með vegna meiðsla frekar en í síðustu leikjum.
Helgi Már Magnússon átti fínan leik fyrir Stockholm en hann skoraði 14 stig í leiknum og tók 7 fráköst.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






